
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Varnarmálastofnun Íslands sinnir ýmsum varnartengdum verkefnum. Þeirra á meðal er rekstur íslenska loftvarnarkerfisins, sem er hluti af samhæfðu loftvarnarkerfi Atlantshafsbandalagsins. Ratsjár- og fjarskiptastöðvar í öllum landshornum eru grunnur þess kerfis.
Varnarmálastofnun tók til starfa 1. júní 2008. Forstjóri er Ellisif Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur. Fastráðnir starfsmenn í þjónustu stofnunarinnar eru fimmtíu og fjórir. Sjö þeirra starfa við ratsjárstöðvar stofnunarinnar á Bolafjalli, í Stokksnesi og á Gunnólfsvíkurfjalli.
Lesa meira
Ísland er herlaust ríki sem hervæðist ekki en tryggir öryggi sitt og varnir með samstarfi við önnur ríki. Fyrsti alþjóðasamningur íslenskra stjórnvalda um varnarmál var gerður árið 1941 þegar samið var við Bandaríkjamenn um að taka við vörnum landsins af Bretum.
Lesa meira
Markmið Alþingis með setningu varnarmálalaga frá 29. apríl 2008 og stofnun Varnarmálastofnunar 1. júní sama ár var fjórþætt. Í fyrsta lagi að afmarka valdheimildir íslenskra stjórnvalda varðandi varnartengd verkefni . . .
Lesa meira