Norðurslóðir

Fjölþættir hagsmunir Íslands

Ratsjárstöðin BolafjalliAthygli ríkja heims beinist í auknum mæli að norðurslóðum.  Íslendingar  hafa ríkra hagsmuna að gæta gagnvart þróun mála á því svæði.  Íslenskt yfirráðasvæði er allt innan norðurskautssvæðisins, samkvæmt alþjóðlegri skilgreiningu. Ekkert annað þjóðríki hefur þá stöðu.

Talið er að loftslagsbreytingar leiði til þess á næstu árum að nýjar siglingaleiðir opnist á norðurslóðum . Möguleikar á hagkvæmri auðlindanýtingu þar munu aukast. Loftslagsbreytingar og sveiflur í sjávarhita geta haft margvísleg áhrif á sjávarútveg á norðurslóðum, meðal annars á göngur fiskistofna. 

Öll þessi þróun mun hafa áhrif á stöðu alþjóðamála í okkar heimshluta, ekki síst hvað varðar öryggismál. Frá sjónarhóli Íslendinga er afar mikilvægt að tryggja orkuöryggi, öryggi á siglingaleiðum, hagkvæma og sjálfbæra auðlindanýtingu og traustar varnir gegn umhverfisslysum á Norðurslóðum. 

Um leið og Íslendingar axla ábyrgð í öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum þurfum við að efla samstarf við aðra til þess að tryggja íslenska hagsmuni eins vel og kostur er.

----

Sjá umfjöllun um Norðurskautið í NATO Review, janúarhefti 2009.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica