Herlaust land í alþjóðlegu samstarfi
Ísland er herlaust land sem tekur virkan þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í öryggis- og varnarmálum til þess að tryggja öryggi sitt og axla ábyrgð í samfélagi þjóða.
Meginstoðir öryggis- og varnarmálastefnu Íslands eru þátttaka í starfi Atlantshafsbandalagsins (NATO), virkt samstarf við grannríki á sviði öryggismála og varnarsamningurinn við Bandaríkin.
Framlag Íslands
Íslenska loftvarnarkerfið tryggir öryggi íslenskrar lofthelgi. Það er jafnframt hluti af samþættu loftvarnakerfi Atlantshafsbandalagsins (NATO). NATO hefur kostað uppbyggingu loftvarnakerfisins og bandalagið er eigandi fjölmargra mannvirkja á Íslandi sem eru nauðsynleg til þess að tryggja starfrækslu þess.
Starfsmenn Varnarmálastofnunar annast rekstur loftvarnakerfisins og mannvirkja NATO í samræmi við skuldbindingar Íslands gagnvart Atlantshafsbandalaginu. Sá rekstur er veigamesta framlag Íslands til sameiginlegra varna NATO.
Herafli nokkurra bandalagsþjóða annast tímabundna loftrýmisgæslu við Ísland. Þjóðirnar sjálfar bera kostnað af rekstri orrustuþotna sinna meðan þær eru að störfum hér við land. Þátttaka íslenska ríkisins, svokallaður gistiríkisstuðningur, er einkum fólgin í því að veita nauðsynlega borgaralega aðstoð og kosta þjónustu og aðstöðu fyrir mannafla og búnað.
