Skýr aðskilnaður varnarmála og borgaralegra verkefna
Varnarmálastofnun er undirstofnun utanríkisráðuneytisins og sinnir verkefnum á sviði varnarmála. Starfsemi stofnunarinnar byggist á varnarmálalögum, sem Alþingi samþykkti þann 16. apríl 2008.
Í lýðræðisríkjum er talið nauðsynlegt í þágu réttaröryggis að greina á milli varnartengdra verkefna annars vegar og borgaralegra verkefna sem lúta að löggæslu og öryggisgæslu í þágu innra öryggis ríkisins hins vegar. Vegna þessa tíðkast ekki í ríkjum, sem við eigum mest samstarf við, að fela lögreglu og slíkum stofnunum verkefni sem snúa að ytra öryggi ríkja.
Varnarmálalögin tryggja slíkan aðskilnað löggæsluverkefna og varnarmála á Íslandi og fela sérstakri stofnun, Varnarmálastofnun, það hlutverk að sinna varnartengdum verkefnum.
Rekstur Varnarmálastofnunar tryggir einnig að skilið er milli stefnumótunar og framkvæmdaratriða á sviði varnarmála. Stefnumörkun er í höndum utanríkisráðherra en Varnarmálastofnun er falið að samræma og sameina framkvæmd ýmissa varnarmálatengdra verkefna og leitast þannig við að ná sem mestri hagkvæmni í rekstri sínum. Er það í samræmi við þá stefnu stjórnvalda að færa afgreiðslu- og framkvæmdarverkefni frá ráðuneytum til lægra settra stjórnvalda.
Skýr aðskilnaður af þessu tagi auðveldar jafnframt lýðræðislegt eftirlit með varnartengdri starfsemi og tryggir nauðsynlegt gagnsæi.
