Ytra öryggi íslenska ríkisins
Markmið Alþingis með setningu varnarmálalaga frá 29. apríl 2008 og stofnun Varnarmálastofnunar 1. júní sama ár var fjórþætt. Í fyrsta lagi að afmarka valdheimildir íslenskra stjórnvalda varðandi varnartengd verkefni, í öðru lagi að greina á milli varnartengdra verkefna og borgaralegra verkefna sem lúta að löggæslu og innra öryggi ríkisins, í þriðja lagi að greina á milli stefnumótunar og framkvæmdaratriða á sviði varnarmála og loks að auðvelda lýðræðislegt eftirlit með varnartengdri starfsemi.
Í varnarmálalögunum er kveðið á um að stjórnvöld móta stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum. Utanríkisráðherra ber ábyrgð á stefnumótuninni og samskiptum Íslands við önnur ríki á þessu sviði. Varnarmálastofnun er undirstofnun utanríkisráðuneytisins og sinnir fjölþættum verkefnum sem snúa að varnarviðbúnaði íslenska ríkisins og ytra öryggi þess.
