Fréttir

Þýski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu

Flugsveit frá þýska flughernum sinnir  loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 7.-25. júní. Sveitin er hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

 Um 140 liðsmenn þýska flughersins verða staddir á Íslandi vegna verkefnisins, sem er sinnt með sex F-4 orrustuþotum. Þetta er í fyrsta sinn sem þjóðverjar sinna loftrýmisgæslu hér á landi.

Orrustuþotur þýska flughersins lentu á Keflavíkurflugvelli þriðjudaginn 1.júní. Fyrstu vikuna munu orrustuþoturnar æfa lendingar á Keflavíkurflugvelli og aðflug að Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica