Fréttir

Varnarmálalögum breytt

Alþingi Íslands hefur samþykkt breytingar á varnarmálalögum nr. 34/2008. Helstu breytingar eru þær að orðið „Varnarmálastofnun“ er tekið úr lögunum og þess stað sett orðin „utanríkisráðuneyti“ eða „utanríkisráðherra“. Með lögunum er utanríkisráðherra heimilt að gera verksamninga og samninga um rekstrarverkefni á sviði öryggis- og varnarmála við aðrar ríkisstofnanir. Þrír nýir liðir töluliðir bætast við ákvæði til bráðabirgða. Í fyrsta lagi að Varnarmálastofnun skal, þrátt fyrir ákvæði laganna, starfa áfram til 1. janúar 2011 og til þess tíma fara með þau verkefni sem stofnunin hefur áður farið með, nema ráðherra hafi falið þau annarri stofnun. Frá og með 1. janúar 2011 skal stofnunin lögð niður. Í öðru lagi er forstjóri Varnarmálastofnunar leystur undan reglubundnum starfsskyldum sínum frá og með 1. september 2010 en frá sama tíma skipar utanríkisráðherra fimm manna verkefnisstjórn sem tekur yfir starfsskyldur forstjóra. Núverandi forstjóri skal vera verkefnisstjórn til aðstoðar og ráðgjafar frá og með 1. september til 1. janúar 2011. Í þriðja lagi skal starfsfólki Varnarmálastofnunar, sem fæst við þau verkefni sem kunna að verða falin öðrum stofnunum, boðið starf, án auglýsingar, fyrir 1. janúar 2011 hjá þeim ríkisstofnunum sem taka yfir verkefni Varnarmálastofnunar.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica