Loftrýmisgæslu Þjóðverja lokið
Flugsveit þýska flughersins, sem hefur sinnt loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland frá 7. júní, flaug af landi brott í dag. Er Þjóðverjunum þakkað einstaklega gott samstarf á meðan loftrýmisgæslu stóð.
Sveitin, sem samanstóð af sex F-4 orrustuþotum, var hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfaði í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Þetta var í fyrsta sinn sem Þjóðverjar sinna loftrýmisgæslu hér á landi.
Gert er ráð fyrir að næsta loftrýmisgæsluverkefni muni verða í haust, þegar bandaríski flugherinn mun sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland. Það mun verða í þriðja sinn sem bandaríski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu hér á landi frá því að loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins tók gildi.
