Fréttir

Höfuðstöðvar Varnarmálastofnunar

Ársskýrsla 2009 - 1.9.2010

Ársskýrsla Varnarmálastofnunar er nú komin út. Í inngangi segir forstjóri Varnarmálastofnunar að árið hafi einkennst af óvissu og sparnaði hjá stofnuninni. Eins og sjá má í rekstrarreikningi sem birtur er með ársskýrslunni var tekjuafgangur ársins 2009 upp á tæpar 100 milljónir. Lesa meira
 
01loftrymisg-nordmenn-270509010101010101020109

Bandaríski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu - 31.8.2010

Flugsveit frá bandaríska flughernum sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 6. – 24. september. Sveitin er hér stödd samkvæmt samningi íslenskra stjórnvalda og Atlantshafsbandalagsins og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Um 175 liðsmenn bandaríska flughersins verða staddir á Íslandi vegna verkefnisins, sem er sinnt með tíu F15 orrustuþotum. Lesa meira
 
zscramble

Óauðkenndar flugvélar innan íslenska eftirlitssvæðisins - 10.8.2010

Tvær óauðkenndar vélar flugu í tvígang um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið miðvikudaginn 28. júlí. Talið er að um rússneskar sprengjuflugvélar, svokallaða Birni, af gerðinni TU-95 hafi verið að ræða. Um tíma lá leið vélanna um íslenska efnahagslögsögu, bæði vestan af landinu þegar þær flugu til suðurs og svo aftur austan við Ísland eftir að vélarnar höfðu snúið við og flugu til norðausturs.

Lesa meira
 

Loftrýmisgæslu Þjóðverja lokið - 25.6.2010

Flugsveit þýska flughersins, sem hefur sinnt loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland frá 7. júní, flaug af landi brott í dag. Er Þjóðverjunum þakkað einstaklega gott samstarf á meðan loftrýmisgæslu stóð. Sveitin, sem samanstóð af sex F-4 orrustuþotum, var hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfaði í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Þetta var í fyrsta sinn sem Þjóðverjar sinna loftrýmisgæslu hér á landi. Lesa meira
 
althingi2

Varnarmálalögum breytt - 25.6.2010

Alþingi Íslands hefur samþykkt breytingar á varnarmálalögum nr. 34/2008. Helstu breytingar eru þær að orðið „Varnarmálastofnun“ er tekið úr lögunum og þess stað sett orðin „utanríkisráðuneyti“ eða „utanríkisráðherra“. Með lögunum er utanríkisráðherra heimilt að gera verksamninga og samninga um rekstrarverkefni á sviði öryggis- og varnarmála við aðrar ríkisstofnanir. Lesa meira
 

Eldri fréttir




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica