Lög, reglugerðir og samningar um varnarmál
Fjölmargar réttarheimildir tengjast starfi Varnarmálastofnunar og varnarmálum. Þar er bæði um að ræða lög frá Alþingi, reglugerðir og þjóðréttarsamninga.
Varnarmálalög nr. 34/2008 eru heildarlög um starfsemi Varnarmálastofnunar. Lögin gilda um stjórnsýslu varnarmála á íslensku yfirráðasvæði og samstarf og samskipti íslenskra stjórnvalda við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála. Lögin taka ekki til öryggistengdra verkefna stjórnvalda innanlands, svo sem löggæslu og almannavarna.
Varmarmálalögin má lesa í heild á vef Alþingis með því að smella hér.
Hér að neðan eru ennfremur tenglar á lög, reglugerðir og þjóðréttarsamninga sem helst tengjast varnarmálum Íslendinga og rekstri Varnarmálastofnunar.
Lög:
Lög um breytingu á varnarmálalögum nr. 98/2010
Lög um loftferðir nr. 60/1998
Tilskipun um aðgang herskipa og herloftfara erlendra ríkja, er ekki eiga í ófriði, að íslensku forráðasviði nr. 44/1939.
Lög um lagagildi varnarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þess nr. 110/1951.
Lög um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli nr. 176/2006.
Lög um réttarstöðu liðsafla aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og Samstarfs í þágu friðar o.fl. nr. 72/2007.
Upplýsingalög nr. 50/1996.
Stjórnsýslulög nr. 37/1993.
Lög um landhelgisgæslu Íslands nr. 52/2006.
Hafnalög nr. 61/2003.
Lög um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn nr. 41/1971.
Siglingalög nr. 34/1985.
Reglugerðir :
Reglugerð um skipulags- og mannvirkjamál á öryggis- og varnarsvæðum nr. 736/2008Reglugerð um ráðstöfun afgangsvöru varnarliðsins nr. 902/2002.
Reglugerð um hollustuhætti og mengunarvarnir á varnarsvæðum nr. 828/2003.
Reglugerð um umferð og dvöl manna á varnarsvæðum nr. 293/2002.
Reglugerð um flugvernd nr. 361/2005.
