Saga

Áfangar í íslenskum varnarmálum

Ísland er herlaust ríki sem hervæðist ekki en tryggir öryggi sitt og varnir með samstarfi við önnur ríki. 

Fyrsti alþjóðasamningur íslenskra stjórnvalda um varnarmál  var gerður árið 1941 þegar samið var við Bandaríkjamenn um að taka við vörnum landsins af Bretum.  Bretar höfðu hernumið Ísland 1940 um líkt  leyti og Þjóðverjar hernámu Danmörku. Fram að því fóru Danir með utanríkis- og varnarmál Íslendinga.  Þegar heimsstyrjöldin var um garð gengin gerðu íslensk og bandarísk stjórnvöld svonefndan Keflavíkursamning frá 1946.

Stofnaðili Atlantshafsbandalagsins

nato-fanar4. apríl 1949 gerðust Íslendingar stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og voru meðal tólf vestrænna þjóða sem undirrituðu stofnsáttmála bandalagsins í Washington.  Enn í dag eru markmið NATO þau sömu og í upphafi, tryggja öryggi og frið í Evrópu.  Bandalagið hefur lagað sig að breyttum aðstæðum í Evrópu með inngöngu nýrra aðildarríkja og auknu samráði og samvinnu við önnur ríki. Ísland á ríka samleið með öðrum aðildarríkjum NATO í bandalagi sem byggist á meginreglum lýðræðis.

Tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin

8. maí 1951 undirrituðu Íslendingar tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin, sem kom í stað Keflavíkursamningsins. Með varnarsamningnum tóku Bandaríkjamenn að sér umsjón með hervörnum Íslands en Íslendingar létu varnarliði Bandaríkjamanna í té Keflavíkurflugvöll og annað nauðsynlegt landsvæði í þágu varna landsins.

LoftrýmisgæslaEftir fall Sovétríkjanna og lok kalda stríðsins dró smám saman úr umsvifum varnarliðs Bandaríkjamanna hér á landi.  Viðræður ríkjanna um breytt fyrirkomulag landvarna á grundvelli samningsins frá 1951 hófust um miðja tíunda áratug síðustu aldar en leiddu aldrei til endanlegrar niðurstöðu.

Árið 2006 tilkynntu Bandaríkjamenn Íslendingum með skömmum fyrirvara um þá ákvörðun sína að að flytja orrustuþotur sínar og björgunarþyrlur burt frá Íslandi ásamt öllum liðsafla og leggja niður starfsemi á Keflavíkurflugvelli.   Eftir brottför Bandaríkjamanna 30. september 2006 náðu ríkin tvö samkomulagi um sérstaka varnaráætlun á grundvelli samningsins frá 1951, sem nær yfir varnir gegn hefðbundinni hernaðarógn á ófriðartímum. Með varnaráætluninni afsöluðu Bandaríkjamenn sér ábyrgð á loftvörnum Íslands á  friðartímum.

Íslendingar starfrækja loftvarnakerfið

H1Eftir brottför bandaríkjahers var samþykkt á vettvangi NATO að Íslendingar héldu áfram starfrækslu íslenska lotfvarnakerfisins og að það yrði samþætt loftvarnakerfi Atlantshafsbandalagsins. Ennfremur var ákveðið að flugsveitir frá herjum bandalagsríkjanna sinntu loftrýmisgæslu við landið fjórum sinnum á ári. Utan þess tíma yrði brugðist við aðsteðjandi hættu  með sérstökum ráðstöfunum af hálfu NATO.   

Það var svo í apríl 2008 sem Alþingi Íslendinga samþykkti í fyrsta skipti heildstæð varnarmálalög og staðfesti þá stefnu sem mótuð hafði verið eftir brottför bandaríkjahers.  Meginforsenda laganna er sú að Íslendingar eru og verða herlaus þjóð. Utanríkisráðherra er ráðherra öryggis- og varnarmála.

Varnarmálastofnun sett á fót

Með varnarmálalögum var Varnarmálastofnun sett á fór. Hún tók til starfa  1. júní 2008 undir stjórn Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur, forstjóra. „Með því að reka íslenska loftvarnarkerfið og sjá um önnur þau eftirlits- og varnartengdu verkefni, sem nýstofnsett Varnarmálastofnun á að sinna, erum við Íslendingar í senn að axla ábyrgð á eigin vörnum og um leið að leggja til sameiginlegs öryggis grannríkja okkar á Norður-Atlantshafi og bandalagsríkja í NATO. Þannig rækjum við skyldur okkar sem sjálfstætt, fullvalda ríki," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, í ávarpi þegar Varnarmálastofnun tók til starfa.




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica