Samstarfsaðilar

Samstarf við fyrirtæki, stofnanir og háskóla

Varnarmálastofnun Íslands á samstarf við fjölmargar stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki í eigu einstaklinga og opinberra aðila. Veigamikill þáttur í samstarfinu er að tryggja að þau mannvirki, sem eru í eigu Atlantshafsbandalagsins hér á landi, nýtist íslensku samfélagi á friðartímum. 

Einnig gera sífellt fleiri íslensk fyrirtæki sér grein fyrir þeim möguleikum sem aðild að Atlantshafsbandalaginu veitir á fjölþættum verkefnum á stórum, alþjóðlegum útboðsmarkaði. Varnarmálastofnun annast þá vottun sem er forsenda þátttöku í útboðum vegna verkefna fyrir Atlantshafsbandalagið.

Þá vinnur Varnarmálastofnun með háskólum í landinu að því að efla rannsóknir á sviði öryggis- og varnarmála hér á landi.

Nokkrir af helstu samstarfsaðilum Varnarmálastofnunar eru:

adilar5r

Sveitarfélög þar sem Varnarmálastofnun Íslands starfar:

 Reykjanesbær; Sandgerði; Garður; Langanesbyggð; Hornafjörður; Bolungarvík

  

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica