crc22

Varnarmálastofnun tók til starfa 1. júní 2008. Stofnunin heyrir undir utanríkisráðherra. Í varnarmálalögum nr. 34/2008 er fjallað um þau verkefni sem stofnunin sinnir.


Bandaríski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu

Flugsveit frá bandaríska flughernum sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 6. – 24. september. Sveitin er hér stödd samkvæmt samningi íslenskra stjórnvalda og Atlantshafsbandalagsins og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Um 175 liðsmenn bandaríska flughersins verða staddir á Íslandi vegna verkefnisins, sem er sinnt með tíu F15 orrustuþotum. Lesa meira
 

Óauðkenndar flugvélar innan íslenska eftirlitssvæðisins

Tvær óauðkenndar vélar flugu í tvígang um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið miðvikudaginn 28. júlí. Talið er að um rússneskar sprengjuflugvélar, svokallaða Birni, af gerðinni TU-95 hafi verið að ræða. Um tíma lá leið vélanna um íslenska efnahagslögsögu, bæði vestan af landinu þegar þær flugu til suðurs og svo aftur austan við Ísland eftir að vélarnar höfðu snúið við og flugu til norðausturs.

Lesa meira
 

Loftrýmisgæslu Þjóðverja lokið

Flugsveit þýska flughersins, sem hefur sinnt loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland frá 7. júní, flaug af landi brott í dag. Er Þjóðverjunum þakkað einstaklega gott samstarf á meðan loftrýmisgæslu stóð. Sveitin, sem samanstóð af sex F-4 orrustuþotum, var hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfaði í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Þetta var í fyrsta sinn sem Þjóðverjar sinna loftrýmisgæslu hér á landi. Lesa meira
 

Þýski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu

Flugsveit frá þýska flughernum sinnir  loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 7.-25. júní. Sveitin er hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.Um 140 liðsmenn þýska flughersins verða staddir á Íslandi vegna verkefnisins, sem er sinnt með sex F-4 orrustuþotum. Þetta er í fyrsta sinn sem þjóðverjar sinna loftrýmisgæslu hér á landi. Lesa meira
 

taeki

Lokað fjarskiptakerfi NATO

Varnarmálastofnun annast rekstur lokaðs fjarskiptakerfis í eigu Atlantshafsbandalagsins (NATO). Hluti af því kerfi er ljósleiðari sem NATO lét leggja til þess að tryggja rekstur  ratsjárstöðvanna á Stokksnesi, Gunnólfsvíkurfjalli, á Bolafjalli og á Miðnesheiði.

Lesa meira
 

logo_varnarmalastofnun

Öryggi tölvukerfa, hugbúnaðar og verkferla

Meðal þeirra verkefna sem Varnarmálastofnun sinna er rekstur gagnatenginga við þau upplýsingakerfi sem Ísland hefur aðgang að hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO) og undirstofnunum þess.

Lesa meira
 

Gunnólfsvíkurfjall

Sjö störf á lands-byggðinni

Sjö fastráðnir starfsmenn Varnarmálastofnunar Íslands starfa við rekstur og viðhald þriggja ratsjárstöðva á landsbyggðinni.

Lesa meira
 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica