NATO

Verkefni tengd aðild Íslands

260208-geir jaap dehoopscheffer brusselVarnarmálastofnun annast ýmis verkefni sem tengjast aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu (NATO).

Rekstur íslenska loftvarnakerfisins er hluti af samhæfðu loftvarnakerfi Atlantshafsbandalagsins. Loftvarnakerfið byggist meðal annars á fjórum ratsjárstöðvum á Miðnesheiði, Gunnólfsvíkurfjalli á Langanesi, á Stokksnesi við Hornafjörð og á Bolafjalli við Bolungarvík.

Aðildinni að Atlantshafsbandalaginu fylgir sú skuldbinding að annast svokallaðan gistiríkisstuðning. Það felur í sér að Varnarmálastofnun ber ábyrgð á rekstri þeirra fjölmörgu  mannvirkja sem reist hafa verið á kostnað Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins hér á landi.

Einnig rekur stofnunin gagnatengingar við upplýsingakerfi Atlantshafsbandalagsins og undirstofnana þess og annast úrvinnslu  upplýsinga úr slíkum kerfum fyrir íslensk stjórnvöld. Þá tekur Varnarmálastofnun þátt í starfi nefnda og undirstofnana Atlantshafsbandalagsins, þ.m.t. herstjórnarmiðstöðvar bandalagsins.

Ísland er stofnaðili að NATO

bbenAtlantshafsbandalagið (NATO) er bandalag 28 ríkja frá Evrópu og Norður Ameríku sem hafa einsett sér að ná fram markmiðum stofnsáttmála NATO sem var undirritaður 4. Apríl 1949.

Í samræmi við sáttmálann, þá er aðalhlutverk NATO að vernda frelsi og öryggi bandalagsríkja með pólitískum og hernaðarlegum aðferðum. Markmið bandalagsins er að vernda sameiginleg gildi sambandsins um lýðræði, einstaklingsfrelsi, réttarríki og friðsamlega úrlausn deilumála. NATO er skuldbundið til að vernda aðildarríki sín gegn ógnunum eða hótunum, en líkt og fram kemur í 5. gr. stofnsáttmálans þá jafngildir árás á eitt bandalagsríki árás á þau öll.

Ísland var eitt af 12 stofnríkjum sáttmálans og er enn fullgildur aðili. NATO er lýðræðisleg alþjóðastofnun og eru allar ákvarðanir bandalagsins teknar sameiginlega af aðildarríkjum á grundvelli einróma samþykkis. NATO er nauðsynlegur vettvangur þar sem Bandaríkin, Kanada og Evrópuríki geta rætt um sameiginleg öryggismál og tekið sameiginlega á þeim.

---

Þeir sem vilja kynna sér NATO nánar geta nálgast upplýsingabækling á íslensku á heimasíðu bandalagsins (smella hér).




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica