Öryggis-og varnarsvæði

Takmarkaður aðgangur

hlid-julliÖryggis- og varnarsvæði eru afgirt og aðgangur að þeim er háður leyfi Varnarmálastofnunar.  Landsvæðum þar sem aðgangur almennings er takmarkaður vegna varnarþarfa hefur fækkað mjög á undanförnum árum. Slík svæði voru víða um land þegar umsvif vegna varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna voru í hámarki.


Öryggis- og varnarsvæði eru m.a. á þessum stöðum:
1.    Við ratsjárstöðvarnar á Miðnesheiði, Stokksnesi, Gunnólfsvíkurfjalli og Bolafjalli.
2.    Við fjarskiptastöð við Grindavík
3.    Á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli er athafnasvæði Varnarmálastofnunar afmarkað sem öryggissvæði.

Kort með landfræðilegum mörkum þessara svæða verður birt hér á síðunni eftir að auglýsing utanríkisráðherra þar að lútandi hefur verið birt opinberlega.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica