Tölvuvarnir
Öryggi tölvukerfa, hugbúnaðar og verkferla
Meðal þeirra verkefna sem Varnarmálastofnun sinnir er rekstur gagnatenginga við þau upplýsingakerfi sem Ísland hefur aðgang að hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO) og undirstofnunum þess.
Varnarmálastofnun er jafnframt falið að vinna úr upplýsingum í slíkum kerfum.
Af eðli þessara verkefna leiðir að Atlantshafsbandalagið, stofnanir þess og einstakar bandalagsþjóðir gera miklar kröfur til Varnarmálastofnunar um öryggi tölvukerfa, hugbúnaðar og verkferla.
Stafslið Varnarmálastofnunar býr yfir þekkingu og reynslu á þessu sviði sem er einstök hér á landi.
